Sendingarleiðir
Á Básinn minn semja kaupandi og seljandi um afhendingu og greiðslu sín á milli — við komum hvergi nálægt greiðslum eða flutningi. Hér eru algengustu leiðirnar.
Sótt
Kaupandi og seljandi mæla sér mót og varan er sótt í eigin persónu.
Pósturinn
Sent með Póstinum — á pósthús, í Póstbox eða heim að dyrum.
Dropp
Sent með Dropp — á afhendingarstað eða heim að dyrum.
Heimsending
Seljandi kemur vörunni sjálfur heim til kaupanda.
Verð og skráning hjá flutningsaðilum
Pósturinn
Reiknivél →Skráðu sendinguna á posturinn.is eða í Póst-appinu. Þú getur skilað á pósthús eða Póstbox, eða pantað „Sækja heima“ svo póstbíllinn sæki pakkann. Verð fer eftir þyngd.
Dropp
Verðskrá →Komdu með pakkann á Dropp-móttökustað (t.d. valdar N1-stöðvar) eða láttu sækja. Afhent á Dropp-afhendingarstað eða heim að dyrum. Verð fer eftir þyngd eða rúmmálsþyngd.
Verðskrár flutningsaðila breytast reglulega — skoðaðu nákvæmt verð hjá þeim áður en þú sendir.